Mjög góður 40 lítra bakpoki á frábæru verði frá LAFUMA. Hentar fyrir 2-3ja daga göngur með tjald/svefnpoka/dýnu. Mikið af vösum og þægilegt aðgengi þar sem það er rennilás neðst að framan þar sem einnig er hægt að komast í aðalhólfið.
Helstu eiginleikar:
Strappar til að festa tjald eða svefnpoka
Opnanlegur að neðan/framan með rennilás
Festingar fyrir göngustafi á hlið
Teygjanlegt hólf að framan með góðu aðgengi
Stillanlegar axlaólar
Stillanlegt mittisbelti með renndum vasa, t.d. fyrir síma
Þrengingarólar þar sem hægt er að aðlaga pokann að því magni sem er í honum
Einn opinn hliðarvasi t.d. fyrir brúsa
Einn renndur hliðarvasi
Einn renndur vasi á loki
Hólf fyrir vatnsblöðru (fylgir ekki með)
Regnyfirbreiðsla fylgir með
Lyklakrókur
Bakpokinn eru úr 100% endurunnum efnum.
LAFUMA er franskt gæðamerki, stofnað árið 1930 og í eigu sömu aðila og MILLET. Gæðin eru mjög góð en á lágu verði.
LAFUMA er þátttákandi í verkefninu 1% for the planet en 1% af sölu bakpokans fer til umhverfismála.
ATH. þessi bakpoki er navy blár þó hann sé svartur á sumum myndunum. Hann er einnig til svartur.