Veðurskilyrði: Hlý fyrir köld/blaut sumur og fyrir vetrarveður
Efni: 100% merino ull
Þyngd: 200 gr
Litur: Svartur (svargrár)

14.900 kr.
11.920 kr.
Þunn ullarpeysa frá norska merkinu JOHAUG úr 100% merino ull. Mjög mjúk og þægileg. Frábærar innanundir í fjölbreytta útivist eins og göngur, hlaup, gönguskíði og skíði en einnig mjög klæðileg ein og sér.
Hálfrennd og rennilásinn er á hliðinni sem gerir peysuna einstaklega smarta.
Peysan er svört (svargrá) með smá mynstri á höndum.
Frekar hefðbundin í stærð, sjá stærðartöflu að neðan. Hún er hins vegar mjög þröng ef tekinn er rétt stærð og margir taka því hana í einu númeri stærra.