Veðurskilyrði: Hlý bæði fyrir kaldari sumur og fyrir vetrarveður
Þykkt ullar: 180 g/m²
Efni: 84% merino ull og 16% nylon
Litur: Svartur

17.900 kr.
14.320 kr.
Þunn ullarpeysa frá RIDGE MERINO. Hægt að nota annað hvort innanundir eða eina og sér. Ullarhettan sem er í raun eins og lambhúshetta er áföst, þægilegog hlý. Hægt að hafa hana fyrir munni og nefi, eða undir höku eða taka hana alveg niður og þá virkar hún bara eins og kragi. VIð elskum þessa peysu!
Peysan er unisex í sniði. Flestir karlmenn taka þá stærð sem þeir eru vanir en konur einu númeri minna.
Peysan er úr 84% sjálfbærri merino ull og 16% nylonþráðum sem eykur styrk peysunnar verulega og gerir hana slitsterka.
Þetta er peysan sem við notum undir hlaupajakkann í köldum veðrum. Okkur finnst þessi tvö lög duga yfir kaldasta tímann því lambhúshettan gerir gæfumuninn. Einnig frábær peysa á síði, göngur, hjólreiðar, útileguna.
Verndar gegn sólarljósi, UPF 50+ vottuð.
RIDGE MERINO er þátttakandi í verkefninu 1% FOR THE PLANET og ráðstafar þannig 1% af sölu í umhverfismál.