Stærðir: 36-43 1/3, hleypur á 2/3 stærðum.
Miðsóli CMEVA miðsóli
Drop: 8 mm
Dempun: Mjög mikil dempun
Notkun: Gönguskór
Þyngd: 476 g (Einn skór í stærð 38)
Litur: Ljósbeige
55.900 kr.
HOKA skór – KAHA 2 – eru frábærir gönguskór frá HOKA. Einstakt að fá allt í senn mjúka skó með mikilli dempun en jafnframt góðan stuðning við öklana og Gore Tex vatnsvörn. Þessi heitir Kaha Frost og er frábrugðin venjulegum Kaha með því að vera fóðraður með primaloft fóðri. Þeir eru því mun hlýrri og einnig aðeins hærri.
Munurinn á KAHA og ANACAPA göngukónum er að þessir eru með mun meira leðri en ANACAPA skórinn og útskýrir það verðmuninn. Báðir eru með GORE TEX vatnsvörn og því vatnsheldir.
Efnið er bæði leður og endurunnið pólýester. Sólinn er að hluta til úr sojabaunaolíu. HOKA er með umhverfisvernd í fyrirrúmi við hönnun á skóm sínum.
Miðsólinn er EVA foam sóli sem gefur miklar dempun.
Helsta einkenni HOKA er mikil mýkt og dempun sem gerir HOKA að einum vinsælustu hlaupaskóm í heiminum í dag.
ATH. þessir HOKA skór eru litlir í stærð. Flestir taka einu númeri stærra, en þeir eru vanir, ef þeir vilja hafa þá þétta, en allt að tveimur númerum stærri ef þeir vilja hafa þá vel rúma.