IQ Bar Próteinstykki – 12 stk – Súkkulaði

4.990 kr. 3.992 kr.

Próteinstykki frá IQ Bar. Oft eru próteinstykki uppfull af allskonar óhollustu en hér fundum við loksins stykki sem eru í senn holl og góð. Hvert stykki er 170 kcal sem kemur aðallega úr próteinum og hollum fitusýrum úr möndlum sem er aðalinnihaldsefnið á eftir baunapróteini. Flott millimál, morgunbiti, eftir æfingu eða hvenær sem er.
12 stk í kassa. Einungis er hægt að kaupa kassa hér á vefsíðunni en í stykkjum í versluninni.
Próteinrík: 12 g af próteinum í hverju stykki.
Ketovænt: Í hverju stykki eru aðeins 2 g af kolvetnum (aðeins 8 kcal í kolvetnum).
Enginn viðbættur sykur: Sætt með örlítilli stevíu. En stykkin eru alls ekki mjög sæt á bragðið en bragðgóð.
Trefjaríkt: 8 g af trefjum í hverju stykki. Trefjar eru mikilvægar fyrir meltinuna og margir borða of lítið af trefjum og því góð leið til að auka trefjaneyslu.
Vegan: Engar dýra- né mjólkurafurðir, próteinið kemur úr baunum.
Ekkert GMO: Hráefnin eru ekki erfðabreitt.
Glútenfrít: Laust við glútein.
Engin E-efni: Hrein innihaldsefni, laust við E-efni.
Ríkt af Magnesíum: Innihaldsefnin eru rík af Magnesíum.
Inniheldur Lion´s Mane svepp: Inniheldur Lion´s Mane sveppinn sem talinn er styrkja ónæmiskerfið, hafa góð áhrif á taugakerfið t.d með því að draga úr kvíða og streitu.
MCTs: Hollar MCTs fitusýrur.
Sojafrítt: Laust við soja.

Til á lager

SKU: IQBar Súkk salt Vöruflokkar: ,