BROOKS skór – Adrenalin GTS 25 – herra

Original price was: 29.900 kr..Current price is: 23.920 kr..

INNANBÆJARSKÓR – HLAUPASKÓR – GÖNGUSKÓR

Adrenalin GTS 25 er sambærilegur skór við Ghost (Ghost er vinsælasti innanbæjarskórinn frá Brooks) nema að Adrenalin er styrktur. Sem þýðir að hann hentar fólk sem gengur skó til á hliðunum (skekkja skó). Það er því styrking til að minnka slit/skekkingu á hliðum.

Munurinn á BROOKS Adrenalin GTS 25 og eldri týpum er að þessi týpa er mýkri og með meiri dempun en eldri týpur. DNA LOFT v3 í miðsóla sem gefur mjög góða dempun. Einnig er meiri öndun í yfirbyggingu.

Yfirbyggingin er með góðri öndum og góð bólstrun í hælkappa sem heldur vel utan um ökla. Mikið til úr endurunnum efnum.  Í miðsólanum virkar dempunin þannig að orkan sem kemur í niðurstiginu færist til hliðanna og minnkar þannig álag á fætur og stoðkerfi líkamans.

Hlaupaskór sem henta einnig frábærlega í göngutúra innanbæjar.

Þetta eru BROOKS skór sem við mælum með í innanbæjarhlaup og göngur.

brooks skór