BROOKS skór – Ghost 17 – herra

27.900 kr.

INNANBÆJARSKÓR – HLAUPASKÓR – GÖNGUSKÓR

Ghost 17 uppfærð útgáfa af Ghost 16. Brooks Ghost er margverðlaunaður skór fyrir góða eiginleika. Á síðustu 12 árum hefur hann fengið fyrstu verðlaunin hjá stærsta og virtasta hlaupatímariti í heiminum Runner’s World. Skórinn hefur einnmitt fengið flest verðlaun þar sem þessi skór hentar flestum. Ghost er mest seldi innanbæjarskórinn frá Books.

Munurinn á 16 og 17 er að 17 er kominn með meira grip og enn betri dempun. DNA Loft kerfi er í sóla sem gerir hann léttari og með meiri dempun. Einnig er komin styrking á reimagötum.

Yfirbyggingin er með góðri öndum og góð bólstrun í hælkappa sem heldur vel utan um ökla. Það er 57% úr endurunnum efnum.  Í miðsólanum virkar dempunin þannig að orkan sem kemur í niðurstiginu færist til hliðanna og minnkar þannig álag á fætur og stoðkerfi líkamans.

Hlaupaskór sem henta einnig frábærlega í göngutúra innanbæjar.

Þetta eru BROOKS skór sem við mælum með í innanbæjarhlaup og göngur.

Nafnið Ghost (draugur) er tilkomið vegna þess að árið 2008 kom hann fyrst á markað. Þetta var byltingakenndur höggdempandi skór og forstjóri fyrirtækisins hljóp iðulega á nóttunni til að prófa skóinn og þannig festist nafnið við hann sem stuttu síðar varð opinbert nafn hans.

brooks skór