BROOKS SKÓR – innanbæjarskór – bæði hlaupaskór og gönguskór
BROOKS Glycerin 22 er mýksti innanbæjar hlaupaskórinn frá BROOKS og með mestu höggdempunina. Í miðsólanum er gel sem er nýtt DNA Tuned efni til að auka höggdempun og fjöðrun. Efnið er grófara í hælnum til að fá mjúka lendingu en fínna í framfæti fyrir meiri spyrnu.
Sérstaklega vel bólstraður og mjúkur hælkappi og tunga sem heldur vel utan um fótinn og er mjög þægilegt.
Munurinn á þessum, Glycerin 22, og Glycerin 21 er að í þessum er uppfært efni í miðsóla eins og lýst er að ofan, það er nýtt efni í yfirbyggingu sem andar betur en áður og breyttur hælkappi sem er veitir stöðugleika og gott aðhald.
Þó þessir hlaupaskór séu hannaðir í innanbæjarhlaup henta þeir frábærlega í göngur og raun jafn mikið teknir í göngur og hlaup. Einnig mikið teknir sem vinnuskór þar sem staðið er og gengið á hörðu undirlagi.