BROOKS SKÓR – innanbæjarskór – bæði hlaupaskór og gönguskór
BROOKS Glycerin 22 er mýksti innanbæjar hlaupaskórinn frá BROOKS og með mestu höggdempunina. Í miðsólanum er gel sem er nýtt DNA Tuned efni til að auka höggdempun og fjöðrun. Efnið er grófara í hælnum til að fá mjúka lendingu en fínna í framfæti fyrir meiri spyrnu.
Þessi er GTS sem þýðir að hann er inninfótar- og utanfótarstyrktur og hentar því þeim sem þurfa innanfótar- eða utanfótarstyrkingu. Hann henntar líka þeim sem eru með hefðbundin fót og veitir styrkingu og þar með aukinn stöðugleika.
Sérstaklega vel bólstraður og mjúkur hælkappi og tunga sem heldur vel utan um fótinn og er mjög þægilegt.
Munurinn á þessum, Glycerin 22, og Glycerin 21 er að í þessum er uppfært efni í miðsóla eins og lýst er að ofan, það er nýtt efni í yfirbyggingu sem andar betur en áður og breyttur hælkappi sem er veitir stöðugleika og gott aðhald.
Þó þessir hlaupaskór séu hannaðir í innanbæjarhlaup henta þeir frábærlega í göngur og raun jafn mikið teknir í göngur og hlaup. Einnig mikið teknir sem vinnuskór þar sem staðið er og gengið á hörðu undirlagi.