BROOKS skór Glycerin 23 – dömu

34.900 kr.

BROOKS SKÓR – innanbæjarskór – bæði hlaupaskór og gönguskór

BROOKS Glycerin 23 er mýksti innanbæjar hlaupaskórinn frá BROOKS og með mestu höggdempunina. Í miðsólanum er gel sem er nýtt DNA Tuned efni til að auka höggdempun og fjöðrun. Efnið er grófara í hælnum til að fá mjúka lendingu en fínna í framfæti fyrir meiri spyrnu.

Sérstaklega vel bólstraður og mjúkur hælkappi og tunga sem heldur vel utan um fótinn og er mjög þægilegt.

Munurinn á þessum, Glycerin 23, og Glycerin 22 er að þessi er örlítið mýkri.

Þó þessir hlaupaskór séu hannaðir í innanbæjarhlaup henta þeir frábærlega í göngur og raun jafn mikið teknir í göngur og hlaup. Einnig mikið teknir sem vinnuskór þar sem staðið er og gengið á hörðu undirlagi.

brooks skór