Hann er með Pebax plastlötu sem gefur aukna spyrnu.
Léttur og góður hlaupaskór frá BROOKS fyrir innanbæjarhlaup. Hann hentar því vel á æfingar til að taka spretti eða í styttri hlaup en einnig í keppni. ATH. hann er extra hár og getur verið ólögegur í sum keppnihlaup.
Sólinn er með nýju Nitrogen Loft DNA v2 en það er tækni sem er notuð í miðsólann þar sem köfnunarefni (nitrogen) er blandað í foamið til að auka mýkt og spyrnu. Þarna fæst því meiri höggdempun án þess að auka þyngd sólans. Stærri einingar eru undir miðjum fætinum til að auka dempun en minni einingar undir tábergi til að gefa betri spyrnu.
60% efnis í skónum er unnið úr endurunnu efni m.a. 7 plastflöskum.