Stærðir: 36-42 2/3, hleypur á 2/3 stærðum.
Miðsóli EVA miðsóli
Drop: 5 mm
Dempun: Mjög mikil dempun
Þyngd: 198 g (Einn skór í stærð 38)
Litur: Bleikur, svartur og hvítur
28.900 kr.
Rincon er einn allra léttasti skórinn frá HOKA. Aðeins 198 g. Hann er mikið tekinn sem hversdagsskór en einnig sem hlaupaskór. Mjög góð dempun og léttur og lipur. Mikið tekinn þegar fólk er að fara til útlanda í borgarferðir. Í hlaupum er bæði hægt að nota hann til æfingar og keppni.
Miðsólinn er EVA foam sóli sem gefur miklar dempun.
Hoka Clifton 9 er mjög vinsæll skór hjá okkur en við mælum ekki síður með þessum. Aðeins léttari en samt með góða dempun á á heldur betra verði en Clifton.
Helsta einkenni HOKA er mikil mýkt og dempun sem gerir HOKA að einum vinsælustu hlaupaskóm í heiminum í dag.
Munurinn á þessu, Clifton 9 og Clifton 8 er að búið er að auka stöðugleika, þétta foam-ið í miðsólanum en á sama tíma að hækka það örlítið, svo saman gefur það meiri stöðugleika og dempun. Meiri öndun á ytra birgði.
Hér er HOKA RINCON 4 í svörtu: skoða svartan
ATH. skórinn er lítill í stærð. Flestir taka einu númeri stærra, en þeir eru vanir, ef þeir vilja hafa þá þétta, en allt að tveimur númerum stærri ef þeir vilja hafa þá vel rúma.