BROOKS skór – Cascadia 19 – dömu

29.900 kr.

BROOKS SKÓR – utanvega skór – bæði hlaupaskór og gönguskór

BROOKS Cascadia 19 er vinsæll og öflugur utanvega hlaupaskór frá BROOKS, raunar sá vinsælasti í utanvegalínu þeirra. Cascadia eru margverðlaunaðir og hafa reynst frábærlega í íslenskri náttúru. Þeir eru einstaklega stöðugir og veita góða höggdempun.

Nýtt í Cascadia 19 er að búið er að endurbæta jafnvægisplötuna svo hún er betur aðlöguð inn í sólann og gefur meiri mýkt. Nitrogen blönduð DNA LOFT v3 höggempun í sóla. Betra grip og slitsterkari távörn.

Jafnvægisplata í miðjum sóla svo þú finnur enn minna fyrir ósléttu undirlagi. Í miðsólanum virkar dempunin þannig að orkan sem kemur í niðurstiginu færist til hliðanna og minnkar þannig álag á fætur og stoðkerfi líkamans.

Þó skórnir séu hannaðir í utanvegahlaup henta þeir frábærlega í göngur og raun jafn mikið teknir í göngur og hlaup. Einnig hægt að nota þá innanbæjar sérstaklega á veturna þegar þörf er á grófum sóla í snjó og hálku.

Yfirbyggingin er með góðri öndum og góð bólstrun í hælkappa sem heldur vel utan um ökla.

Skórinn er að hluta úr endurunnum efnum, sem jafngildir um 10 plastflöskum.

Þetta eru BROOKS skór sem við mælum með í utanvegahlaup.

brooks skór