HOKA skór Mafate 5- utanvega – dömu

37.900 kr.

HOKA SKÓR – utanvega skór – bæði hlaupaskór og gönguskór

HOKA MAFATE 5 er einn af okkar uppáhalds utanvegaskóm frá HOKA. Henta sem hlaupaskór og gönguskór. Góðir allt frá stuttum og upp í mjög löng hlaup með frábærri mýkt og dempun. Helsta einkenni HOKA er mikil mýkt og dempun sem gerir HOKA að einum vinsælustu hlaupaskóm í heiminum í dag.

Helsti munurinn á MAFATE 4 og 5 að nú er komið enn betra grip (Mafate 4 var samt með eitt allra besta grip sem utanvegaskór er með). Meira drop, enn meiri dempun. Á móti aðeins þyngri. Við mælum mjög mikið með þessum skóm í hlaup, æfingar og keppni, og göngur.

Miðsólinn er úr tvöföldum EVA sóla sem gefur mikla dempun.

Vibram® Megagrip sóli sem gefur einstakt grip með laserskornu mynstri.

Skórinn situr mjög vel og styður vel við öklann.

Helsti munurinn á Mafate og Speedgoat er að Mafate er aðeins grófari, heldur betur utan um öklann, enn betra grip örlítið þyngri en samt mjög léttur.

Mafate er gígur á eyju í Indlandshafi.

ATH. HOKA skór er almennt lítill í stærð. Flestir taka einu númeri stærra í þessum HOKA skóm en þeir taka í venjulegum skóm.

Litur
Blár
Ljósblár