Stærð: 46,2 x 46,2 x 13,7 mm
Skjástærð og upplausn: 260 x 260
Tegund skjás: 3. kynslóð Memory-in-Pixel snertiskjár. Mun sparneytnari en OLED en samt nægjanlegja bjartur til að sjást vel í mikilli birtu
Þyngd: 64 g með silicon bandi og 51 g með nylon bandi
Umgjörð utan um skjá: Titanium
Efni í skjá: Sapphire gler
Umgjörð: Riber Rainforced Polymer
Efni í ól: Sílíkon
Rafhlöðuending:
– 24 dagar í reglulegri notkun
– 65 klst. í GPS notkun
Hleðslutími: Minna en 2 klst.
Vatnsvörn (dýpt): 50 m
Tengimöguleikar: Bluetooth
Tenging við síma: WiFi / COROS App
Búnaður: Hjartsláttarmælir, svefnmælir, hröðun (Accelerometer), snúður (3-Axis Gyroscope), áttaviti (3-Axis Compass), hæðarmælir, optical pulse oximeter, electrocardiogram sensor, hægt að stýra myndavélum, tónlist, HRV index, hægt að finna símann ef hann týnist, tala handfrjálst í gegnum úrið í gegnum símann o.fl.
Líkamsþjálfun: Hlaup, hlaupabretti, utanvegahlaup, hlaup á braut, fjallganga, ganga, þríþraut, hjólreiðar, þrekhjól, fjallaklifur, sund, sjósund, skíði, snjóbretti, gönguskíði, fjallaskíði, styrkur, líkamsrækt með GPS, líkamsrækt í sal, fjölsport, sjóbretti,
Litur: Svart

Úrið sem lærir á þig
COROS hefur hannað snjallkerfi sem lærir inn á þína skreflengd. Þegar þú hleypur úti þá lærir úrið þinn hlaupatakt og getur þannig betur áætlað vegalengd sem hlaupin er á hlaupabretti eða þar sem GPS merki er lélegt eins og t.d. í undirgöngum.

Hlaup á braut
Hefðbundin hlaupabraut er 400 m. Flest GPS úr eiga erfitt með að mæla rétta vegalengd þegar hlaupið er á braut. Með hlaupabrautarstillingunni frá Coros er tryggt að æfing þín sé rétt skráð óháð því á hvaða braut þú hleypur. Engin þörf lengur á að laga vegalengdina til eftir á, úrið sér um að gera þetta rétt í fyrstu tilraun.

Háþróuð greining á æfingunni
COROS appið er háþróað, mjög einfalt frábært og í notkun. Coros appið gefur þér fullkomna grafíska greiningu á æfingunni, þar á meðal: VO2 max, mat á endurheimt, hraðaþröskuld (threshold pace), æfingaálag síðustu 7 daga, heilsustuðul og margt fleira. Að auki getur þú tengt appið þínu uppáhalds æfingakerfi eins og Strava eða TrainingPeaks og fengið allar æfingar sjálfkrafa þangað yfir.


















